Marel provider of advanced processing systems and services to the Poultry, Meat and Fish industries.
Marel er í fararbroddi á heimsvísu í framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. www.marel.is
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og ...
See More
framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi en kjörorð okkar er „Advancing Food Processing“. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa yfir 4.000 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.
Vöruframboð fyrirtækisins spannar allt framleiðsluferlið, frá frumvinnslu hráefnis til pökkunar í neytendaumbúðir. Marel býður upp á mikið úrval háþróaðra tækja og hugbúnaðar, þar á meðal vogir, flokkara, skurðarvélar, sagir, eftirlitsbúnað, beintínsluvélar, frysta, pökkunar- og merkingarvélar, svo eitthvað sé nefnt. Þá býður fyrirtækið upp á samþætt heildarkerfi sem henta á öllum helstu sviðum matvælavinnslu ásamt lausnum sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina.
Með stöðuga nýsköpun að leiðarljósi hefur Marel umbreyst úr sprotafyrirtæki í heimsleiðtoga á sínu sviði. Fyrirtækið leggur að meðaltali 5-6% af veltu í rannsóknar- og þróunarstarf á ári hverju, sem er hæsta hlutfall sem fyrirfinnst í greininni. Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir frá Marel gera framleiðendum kleift að hámarkað nýtingu, afköst og arðsemi.